Helgi stefnir á 2. til 3. sætið á lista Framsóknar

Helgi Héðinsson oddviti Skútustaðahrepps hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. til 3. sætið á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi.

Þetta kemur fram í tilkynningu en þar segir Helgi að hann hafi að vandlega athuguðu máli hef ég, í samráði við fjölskyldu og vini, ákveðið að bjóða mig fram á listann.

„Meginástæða þess að ég gef kost á mér nú er óbilandi trú mín á þeirri vegferð sem Framsóknarflokkurinn hefur verið á, sér í lagi á líðandi kjörtímabili. Vegferð samvinnu, uppbyggingar og umbóta sem knúin er áfram af fólki með hugsjónir. Mér líður eins og ég geti lagt þeim málstað lið, en ekki síður að þar sé vettvangur góðra verka sem ég vil fylgja fast eftir,“ segir Helgi.

„Síðustu ár hef ég unnið af krafti sem oddviti Skútustaðahrepps. Þar hef ég í góðum hópi fólks starfað eftir hugmyndafræði sem ég er ákaflega stoltur af. Hugmyndafræðin byggir á því að styrkja stoðir samfélagsins með hamingju og vellíðan fólksins að leiðarljósi,“ segir Helgi.

„Ég hef verið svo lánsamur að hafa haft tækifæri til að byggja mér traustan grunn með fjölskylduna mér við hlið. Síðustu 15 ár hef ég byggt upp rekstur á Geiteyjarströnd í Mývatnssveit í ferðaþjónustu, fiskvinnslu og við sauðfjárbúskap. Ég hef menntað mig og lokið meistaraprófi í viðskiptafræði auk MBA gráðu frá Háskóla Íslands. Ég hef fengið tækifæri til að rækta leiðtogann á ýmsum sviðum, þar á meðal í handboltanum á Selfossi og í Mosfellsbænum, hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga, við kennslu í Háskóla Íslands og sem formaður veiðifélags Mývatns.

Umfram allt er ég ungur, jákvæður og bjartsýnn. Fullur af krafti til góðra verka.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.