Heitavatnslaust utan við Grjótá á Eskifirði
Heitavatnslaust verður í húsum utan við Grjótá á Eskifirði í dag föstudag vegna vinnu við tengingu á stofnlögn í tengslum við byggingu á brú yfir Lambeyrará.Í tilkynningu á vefsíðu Fjarðabyggðar segir að skrúfað verður fyrir heitavatnið klukkan 09:00 og mun vinna standa yfir fram eftir degi. Áætlað er að verkið taki að minnsta kosti sjö klukkustundir. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.