Hafna ásökunum um svarta atvinnustarfsemi: Umræða um sjálfboðaliða skammt á veg komin

Forsvarsmenn lífræna búsins í Vallanesi á Fljótsdalshéraði hafna ásökunum um að stunduð sé svört atvinnustarfsemi á búinu og saka AFL Starfsgreinafélag um dylgjur. Vinnumálastofnun kvaddi lögreglu þangað í vikunni og gerði athugasemdir við að ráðningarsamninga vantaði.


Líkt og Austurfrétt greindi frá á fimmtudag fóru fulltrúar frá Vinnumálastofnun, Ríkisskattstjóra og AFLi Starfsgreinafélagi í heimsókn á búið til að kanna ráðningarkjör starfsmanna. Gerðar voru athugasemdir við að ráðningarsamninga og kennitölur vantaði auk atvinnuleyfa fyrir starfsmenn frá löndum utan EES.

Í frétt frá AFLi var hnykkt á að sjálfboðaliðavinna í samkeppnisrekstri sé bönnuð og um félagslegt undirboð sé að ræða. Í tilkynningu frá Eymundi Magnússyni og Eygló Björk Ólafsdóttur sem reka lífræna ræktun undir merkjum Móður jarðar í Vallanesi er þessum ásökunum hafnað.

Ganga ekki með ráðningarsamninga í vasanum

Þar segir að auk þeirra séu nú fjórir starfsmenn í Vallanesi, þar af þrír erlendir. Vegna mannfæðar sé innlent starfsfólk ekki að vinna á svæðinu.

Allir þessir starfsmenn hafi undirritaða ráðningarsamninga. Einn bíði eftir kennitölu en biðtími eftir þeim sé oft 6-8 vikur. „Starfsmanni AFLs á að vera það ljóst að undirritaðan starfssamning þarf til að sækja um kennitölu og frábiðjum við okkur dylgjur um að hér sé starfsfólk án samninga þó það gangi ekki með þá uppá vasann.“

Fróðleiksfúsir ferðamenn en ekki fólk í atvinnuleit

Í Vallanesi eru einnig sjálfboðaliðar á vegum World Wide Opportunities on Organic Farms (WWOOF) sem eru „viðurkennd sjálfboðaliðasamtök í þágu lífræns landbúnaðar“ sem meðal annars starfi í nágrannalöndum Íslands. Þessir sjálfboðaliðar starfa í 2-3 vikur í Vallanesi „við ræktunina og fegrun staðarins.“

Samkvæmt reglum samtakanna mega ekki fara neinar í peningagreiðslur milli gestgjafa og sjálfboða en gestgjafi skal útvega þeim fæði og húsnæði. Ríkisskattstjóri hefur sent frá sér áminningar um að skatt beri af greiða af slíkum hlunnindum.

„Skýrt er tekið fram að sjálfboðaliðar eiga ekki að koma í staðinn fyrir launaða starfsmenn og er þess vel gætt enda gæðakröfur við framleiðslu matvæla þess eðlis. Sjálfboðaliðarnir standa sjálfir straum af ferðakostnaði til landsins enda er hér um að ræða fróðleiksfúsa ferðamenn en ekki fólk í atvinnuleit. Hugtakið svört atvinnustarfsemi á því ekki við hér að nokkru leiti,“ segir í tilkynningu Vallanesbænda.

Ennfremur kemur fram í henni að í Vallanes hafi komið nemendur úr landbúnaðarskólum í Evrópu og Bandaríkjunum í starfa til að öðlast verklega reynslu í garðyrkju eða umhverfisfræði. Til séu samningarnir við skólana sem hafi haft frumkvæðið.

Fara fram á afsökunarbeiðni frá AFLi

Þá gera forsvarsmenn Vallanes sérstakar athugasemdir við ummæli í tilkynningu AFLs þar sem talað var um „lífsþreytta millistéttarunglinga.“

„Ljóst er að umræða um eðli og tilgang sjálfboðaliðastarfa er mjög skammt á veg komin hér á landi og bera ummæli fulltrúa AFLS því glöggt vitni. Ummælin lýsa miklum fordómum gagnvart því fólki sem um ræðir sem sótt hefur landið heim í þeim tilgangi að styðja við lífrænan landbúnað og kynnast í leiðinni landi og þjóð. Margt af þessu fólki skilar sér til baka sem ferðamenn, námsmenn eða starfsmenn á Íslandi m.a. aftur til okkar.

Þó einhverjar reglur þurfi enn að skýra á Íslandi er það eðlileg krafa að slíkt sé rætt og mótað af yfirvegun. Móðir Jörð í Vallanesi mun fara þess á leit við þar til bær yfirvöld að starfsemi WWOOF verði viðurkennd hér líkt og í öðrum löndum. Samtökin veita mjög mikilvægan stuðning við lífrænan landbúnað og hvetur ungt fólk til að leggja fyrir sig lífræna ræktun, huga að heilbrigði umhverfis og temja sér umhverfisvænni lífsstíl.

Við hörmum að sjá jafn mikilvægt félag á borð við AFL Starfsgreinafélag hafa uppi málflutning sem er jafn villandi og raun ber vitni og opinbera fordóma sína í garð gesta sem sækja Ísland heim með niðrandi ummælum líkt og í þessu tilfelli. Auk þess gagnrýnum við mjög þau vinnubrögð AFLs að dreifa myndum til fjölmiðla af starfsfólki og sjálfboðaliðum á vettvangi án heimildar þeirra og hvetjum AFL til að biðja fólkið afsökunar.

Sjálfboðaliðastarf er almennt viðurkennt í flestum löndum og reglum hagað þannig að þær séu skýrar og almennt litið svo á að hér sé um að ræða virkjun ungs fólks til góðra verka og sjálfsagðan kafla í skóla lífsins. Það væri mikill sjónarsviptir af þessu fólki á Íslandi og leitt ef Ísland getur ekki eins og önnur lönd boðið þá upplifun og lærdóm sem samtök á borð við WWOOF gefa kost á.“

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.