Gul veðurviðvörun nær yfir allt Austurland

Gul veðurviðvörun Veðurstofunnar nær nú yfir allt austanvert landið í dag og fram á kvöld. Spáð er norðvestan stormi eða roki.

Á Austurlandi að Glettingi er spáð norðvestan 18-23 m/s og lélegu skyggni í hríð á fjallvegum. Búast má við 30-35 m/s hviðum við fjöll. Samgöngutruflanir líklegar. Viðvörunin gildir til klukkan þrjú í dag.

Á Austfjörðum er einnig spáð norðvestan stormi eða roki, 18-25 m/s. Búast má við mjög hvössum og varhugaverðum vindhviðum við fjöll 35-45 m/s. Samgöngutruflanir líklegar og ekkert ferðaveður er á meðan viðvörunin er í gildi.

Nauðsynlegt er að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón og er fólki bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Viðvörunin gildir til klukkan átta í kvöld.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.