Grunnskólinn á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði lokaður í dag
Nemendur í 1. – 10. bekk Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla eru heima í dag meðan brugðist er við Covid-19 smiti sem greindist hjá nemenda á miðstigi skólans í gær.Allir nemendur í 1. – 6. bekk, ásamt nokkrum starfsmönnum, eru í sóttkví en aðrir nemendur og starfsmenn í smitgát. Eðlilegt skólahald er hjá nemendum í leikskóladeildum skólans.
Þær upplýsingar fengust hjá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi í morgun að beðið sé eftir niðurstöðum úr sýnatöku frá í gær. Vonast sé til að tíðindi úr henni berist upp úr hádegi í dag.
Eitt smit greindist til viðbótar á Vopnafirði um helgina. Viðkomandi var í sóttkví við greiningu.