Greiða 442 milljónir króna til bænda vegna kaltjóns

Greiddar hafa verið 442 milljónir króna í styrki úr Bjargráðasjóði til bænda á Austur- og Norðurlandi vegna mikils kal- og girðingatjóns veturinn 2019-2020.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Þar segir að mikið tjón varð á ræktarlandi og girðingum á tímabilinu og því hafði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, frumkvæði að því að sjóðnum yrðu tryggðar 500 milljónir til að koma til móts við bændur og það tjón sem þeir urðu fyrir.

Kaltjónið sem varð á túnum var næstmest hjá bændum á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá Bjargráðasjóði sóttu 48 bændur á Austurlandi um bætur til sjóðsins. Um var að ræða tjón á alls 1.175 hekturum, að því er segir í frétt á Austurfrétt.is í október s.l.

Í tilkynningunni segir að kaltjónið olli mikilli uppskerurýrnun sumarið 2020 og samhliða verulegur kostnaður við endurræktun og fóðurkaup. Girðingatjón varð einnig umtalsvert vegna snjóþyngsla. Með greiðslunni er komið til móts við kostnað bænda af þessum sökum og nema greiddir styrkir að meðaltali um helmingi tjónsins að mati stjórnar sjóðsins.

Kaltjón varð alls á 4.776 hekturum ræktarlands hjá þeim sem sóttu um til sjóðsins auk tjóns á 221,6 kílómetrum af girðingum. Alls bárust 212 umsóknir vegna kaltjóns.  Stjórn sjóðsins ákvað að greiða styrki til 183 umsækjenda, alls að upphæð kr. 381,4 milljónum kr.

Alls bárust 73 umsóknir vegna girðingatjóns.  Stjórn sjóðsins ákvað að greiða styrki til 72 umsækjenda, alls að upphæð kr. 60,6 milljónir kr. Aðeins tveir bændur á Austurlandi sóttu um styrk vegna girðingatjóns.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar