Gæðahráefni fékkst í Síldarsmugunni

Mjög góð makrílveiði var í Smugunni í gær og eru þrjú skipanna sem tengjast Síldarvinnslunni á landleið en Bjarni Ólafsson AK lýkur við að landa rúmlega 1000 tonnum í Neskaupstað í dag. Um er að ræða gæðahráefni.

Beitir NK er á leið til Neskaupstaðar með 1700 tonn og er væntanlegur síðdegis. Margrét EA er á leið til Færeyja með 1260 tonn og Börkur NK er á leið til Florö í Noregi með 930 tonn.

Ástæðan fyrir löndunum erlendis er sú að veiðin er umfram afkastagetu fiskiðjuversins í Neskaupstað.
Rætt er við Tómas Kárason skipstjóra á Beiti á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

„Þessi 1700 tonn sem við erum með er gæðahráefni. Þetta er átulaus fiskur og meðalþyngdin er yfir 500 grömm. Þetta gerist vart betra.“ segir Tómas

„Það var mjög góð veiði í gær og þá tókum við síðasta holið. Þetta var 400 tonna hol. Við höfðum dregið í töluverðan tíma þegar fiskurinn birtist allt í einu og þessi 400 tonn komu í trollið á einum og hálfum tíma. 

Aflinn sem við erum með fékkst í fimm holum;  við tókum þrjú hol og Börkur tvö. Samvinna skipanna sem veiða á vegum Síldarvinnslunnar hefur gengið afar vel alla vertíðina og þetta er mjög skynsamlegt fyrirkomulag ekki síst þegar langt er að sækja. Þegar við komum til Neskaupstaðar í dag er verið að klára að vinna úr Bjarna Ólafssyni þannig að þetta smellpassar allt saman,“ segir hann.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.