Enn sex manns með virkt smit

Sex manns eru enn í einangrun á Austurlandi með virkt Covid-19 smit. Áfram fækkar í sóttkví.

Síðast greindist smit í fjórðungum sunnudaginn 16. ágúst. Fjórtán eru nú í sóttkví eru voru 23 í byrjun vikunnar.

Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands er mikilvægi smitvarna einstaklinga, svo sem handþvottar, tveggja metra fjarlægðar og notkun spritts, áréttað.

Þá hvetur aðgerðastjórnin félagasamtök, sem eru að hefja starfsemi eftir sumarfrí, að gæta vel að smitvörnum innan sinna raða.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar