Ekki talið að smit á Egilsstöðum hafi dreift sér
Hvorki verður skóli hjá yngstu sex bekkjum grunnskólans á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði né í leikskóla á morgun. Engin ný smit hafa þó greinst þar í dag en eitt á Egilsstöðum.Í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi kemur fram að margir hafi í dag farið í sýnatöku eftir að smit greindist hjá miðstigi í skólanum í gær.
Ekkert skólahald verður í 1. – 6. bekk né í leikskólanum á morgun meðan beðið er niðurstaðna úr skimununum í dag.
Covid-19 smit greindist á Egilsstöðum í dag. Smitrakning stendur yfir en ekki er talið að það hafi dreift sér.
Aðgerðastjórn beinir því til íbúa að gæta að sér í hvívetna enda smit enn að greinast í umdæminu og brýnt að fara varlega sem fyrr.