Eiríkur Björn oddviti Viðreisnar?
Útlit er fyrir að Eiríkur Björn Björgvinsson, fyrrum bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, skipi fyrsta sætið á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.Akureyri.net greindi frá því í morgun að viðræður stæðu yfir Eirík Björn um að hann taki að sér oddvitasætið og vænta megi niðurstaðna úr þeim á næstu dögum.
Eftir því sem Austurfrétt kemst eru málin lengra komin en svo og þess vænst að Eiríkur Björn, sem og framboðslistinn, verði kynnt formlega í vikunni.
Í samtali við Austurfrétt kvaðst Eiríkur Björn ekki geta tjáð sig um þann orðróm sem í gangi væri.
Hann var æskulýðs æskulýðs- og íþróttafulltrúi Egilsstaðabæjar 1994-1996, íþrótta- og tómstundafulltrúi Akureyrarbæjar 1996-2002 og bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði 2002-2010 en síðan bæjarstjóri á Akureyri 2010-2018. Í lok árs 2018 var hann svo ráðinn forstöðumaður forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar.