Búið að loka fyrir umferð um hafnarsvæðið í Neskaupstað
Búið er að loka fyrir umferð um hafnarsvæði í Neskaupstað vegna óveðursins sem geysar þar. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar,
Á vefsíðunni segir að slæmt veður er á svæðinu og víða mjög hvasst. Ófært er þessa stundina á Fjarðarheiði og um Vatnsskarð eystra. Í Norðfirði er búið að loka um hafnarsvæðið Neskaupstað þar sem þakplötur voru farnar að fjúka.