Bókasöfn Fjarðabyggðar opin almenningi á ný
Frá og með deginum í dag verður létt á takmörkunum á opnunartíma bókasafna Fjarðabyggðar og þau opnuð almenningi.Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir einnig að takmarkanir varðandi fjölda gesta bókasafnanna miðast við stærð á rými safnanna og eru viðskipavinir beðnir um að sýna tillitssemi og fylgja reglum.
Þá er á vefsíðunni greint frá breytingum á sóttvarnarreglum sem taka gildi í dag Þannig mun regla um nándarmörk verða einn metri í stað tveggja og gildir það jafnt milli nemenda og starfsfólks. Fjöldatakmörk fyrir nemendur í hverju rými verði 150 nemendur á öllum aldursstigum grunnskóla.
Fjöldatakmörk fyrir fullorðna í rými verði 50 manns og nálægðarmörk fullorðinna verða einn metri. Þar sem ekki er hægt að viðhafa nálægðarmörk eða fjöldatakmörk verður grímuskylda fyrir fullorðna.
Á öllum skólastigum öðrum en á háskólastigi verður foreldrum, aðstandendum og öðrum utanaðkomandi heimilt að koma inn í skólabyggingar, að uppfylltum reglum um sóttvarnir. Þetta eru þær meginbreytingar sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið.