Boða til íbúafundar á Seyðisfirði
Haldinn verður upplýsingafundur fyrir Seyðfirðinga í dag,18. janúar kl. 17.00. Tilgangur fundarins er að upplýsa íbúa Seyðisfjarðar um stöðu mála.Þetta kemur fram á vefsíðu Múlaþings. Þar segir að fundurinn fer fram í gegnum Facebooksíðu Múlaþings. Farið verður yfir helstu atriði sem fram koma á fundinum á ensku og pólsku. Íbúar geta sent inn spurningar fyrir fundinn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Dagskrá
Stutt innlegg frá eftirfarandi aðilum:
Björn Ingimarsson, sveitastjóri Múlaþings
Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, þjónustumiðstöð almannavarna, Herðubreið
Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri Múlaþings
Sérfræðingur frá Veðurstofunni
Jón Haukur Steingrímsson, sérfræðingur frá Eflu