Blængur með 182 milljóna króna afla

Löndun hófst úr frystitogaranum Blængi NK í Norðfjarðarhöfn í morgun. Afli skipsins er rúm 750 tonn upp úr sjó að verðmæti 182 milljónir króna.

Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri segir, í samtali á vefsíðu Síldarvinnslunnar,  að þetta hafi verið fínasti túr.

„Aflinn er góð blanda, mest ufsi og síðan töluvert af gulllaxi og djúpkarfa en minna af öðrum tegundum. Við vorum 25 daga í túrnum og veður var gott allan tímann að undanskildum þremur fyrstu dögunum. Þessa þrjá fyrstu daga vorum við hér fyrir austan í grálúðu en síðan vorum við á suðvesturmiðum frá Selvogsbanka vestur í Skerjadýpi, segir Bjarni Ólafur.

"Það var settur nýr veltitankur í skipið í janúar og hann hefur gjörbreytt því til hins betra. Skipið veltur miklu minna en áður og fer betur með mannskapinn – strákarnir vita vart af brælum,“ segir Bjarni Ólafur.


Ráðgert er að Blængur haldi til veiða á ný annað kvöld.

Mynd: Grétar Örn Sigfinnsson/SVN

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar