Beðið eftir niðurstöðum sýnatöku frá í gær
Eitt nýtt Covid-19 smit var staðfest á Austurlandi í gær. Enn er beðið eftir niðurstöðum sýnatöku frá í gær þar sem ekki var hægt að koma sýnunum suður til Reykjavíkur til greiningar í morgun.Smitið sem staðfest var í gær tengist grunnskólanum á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði. Alls eru fjögur staðfest smit hjá nemendum skólans.
Töluverður fjöldi íbúa á stöðunum er í sóttkví vegna smitanna. Í gær voru tekin um 80 sýni í bæjunum. Þau áttu að fara með áætlunarflugi frá Egilsstöðum í morgun en því var aflýst vegna veðurs.
Það sama gerðist með sýni sem tekin voru á Egilsstöðum og Reyðarfirði í gær. Þau sýni fara suður með miðdegisvél í dag. Niðurstaðna er því ekki að vænta fyrr en seint í kvöld eða fyrramálið.
Vegna þessa hefur verið ákveðið að fella niður allt skólahald á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði á morgun.