Aurskriða færði hús 50 metra á Seyðisfirði

Aurskriða hreif með sér hús og færði 50 metra á Seyðisfirði í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Mikil úrkoma hefur verið á Seyðisfirði í gærkvöldi og í nótt. Í gærkvöldi voru þau svæði þar sem fólk í húsum var beðið um að gæta varúðar stækkuð.

Í nótt féllu tvær skriður úr Nautaklauf sem er sami farvegur og stærsta skriðan á þriðjudaginn féll úr. Fyrri skriðan féll upp úr klukkan eitt og önnur skriða um tveimur tímum seinna. Sú skriða tók með sér mannlaust timburhús og flutti um 50 m. Það hús var innan svæðis sem hafði verið rýmt. Í kjölfarið var staðan endurmetin og nokkur hús til viðbótar rýmd, að því er segir í tilkynningunni.

Búist er við að fari að draga úr úrkomu þegar líður á morguninn og vonir standa til að ástandið skáni við það en svo gæti bætt í úrkomu seinnipartinn. Spáð er að stytti upp þegar líður á morgundaginn.

Vegna aðstæðna eru íbúar beðnir um að fylgjast vel með fréttum og vera ekki á ferðinni fyrr en í birtingu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.