Arnbjörg í fjórða sæti hjá Sjálfstæðisflokknum

Arnbjörg Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar á Seyðisfirði, er efst Austfirðinga á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi þingkosningar. Listi flokksins var samþykktur á tvöföldu kjördæmisþingi í Mývatnssveit um helgina.


Fimm aðrir Austfirðingar eru á listanum, Dýrunn Pála Skaftadóttir bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, Jónas Ástþórs Hafsteinsson laganemi af Héraði, Sigurbergur Ingi Jóhannsson nemi úr Neskaupstað, Magni Þór Harðarson frá Eskifirði og Guðrún Ragna Einarsdóttir af Jökuldal.

1. Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, Akureyri
2. Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri og bæjarfulltrúi, Akureyri
3. Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismaður, Norðurþingi
4. Arnbjörg Sveinsdóttir, bæjarfulltrúi og fyrrum alþingismaður, Seyðisfirði
5. Elvar Jónsson, laganemi og varaformaður SUS, Akureyri
6. Melkorka Ýrr Yrsudóttir, framhaldsskólanemi, Akureyri
7. Dýrunn Pála Skaftadóttir, verslunarstjóri og bæjarfulltrúi, Fjarðabyggð
8. Sæunn Gunnur Pálmadóttir, hjúkrunarfræðingur, Fjallabyggð
9. Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, skólastjóri og bæjarfulltrúi, Dalvíkurbyggð
10. Jónas Ástþór Hafsteinsson, laganemi og knattspyrnuþjálfari, Fljótsdalshéraði
11. Ketill Sigurður Jóelsson, nemi, Akureyri
12. Lára Halldóra Eiríksdóttir, grunnskólakennari, Akureyri
13. Sigurbergur Ingi Jóhannsson, nemi, Fjarðabyggð
14. Rannveig Jónsdóttir, rekstrarstjóri, Akureyri
15. Magni Þór Harðarson, vinnslustjóri, Fjarðabyggð
16. Erna Björnsdóttir, lyfjafræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi, Norðurþingi
17. Baldur Helgi Benjamínsson, búfjárerfðafræðingur, Eyjafjarðarsveit
18. Guðrún Ragna Einarsdóttir, bóndi, Fljótsdalshéraði
19. Björgvin Þóroddsson, fyrrum bóndi, Langanesbyggð
20. Björn Jósef Arnviðarson, fyrrum sýslumaður og bæjarfulltrúi, Akureyri

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.