Afkoma Múlaþings neikvæð um 110 milljónir króna
Rekstrarafkoma Múlaþings árið 2020 var neikvæð um 110 milljónir kr. samkvæmt samstæðureikningi sveitarfélagsins en samanlagðar fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna sem mynduðu Múlaþing í fyrra gerði ráð fyrir 215 milljóna kr. rekstrarafgangi.Þetta kemur fram á vefsíðu Múlaþings. Þar segir að rekstarafkoma A hluta var neikvæð um 172 milljónir kr. en samanlagðar fjárhagsáætlanir með viðaukum gerði ráð fyrir 50 milljóna kr. rekstarhalla.
Fram kemur m.a. að hrein fjármagnsgjöld námu 488 milljónum kr. í samstæðu A og B hluta en samanlögð fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 336 milljónum kr. Hrein fjármagnsgjöld A hluta námu 341 milljónum kr. en samanlögð fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir 212 milljónum kr.
Eigið fé var jákvætt í árslok 2020 um 2.735 milljónir kr. í samstæðu A- og B hluta að teknu tilliti til hlutdeildar minnihluta. Eigið fé A hluta var jákvætt um 1.572 milljónir kr. í árslok 2020.
Skuldir og skuldbindingar samstæðu A- og B hluta námu í árslok 2020 um 10,4 milljörðum kr. og hækka um 732 milljónir kr. frá árinu 2019. Skuldaviðmið skv. reglugerð um fjárhagsleg viðmið fyrir samstæðureikning A og B hluta er 109% í árslok 2020.