Aðeins eitt staðfest smit á Austurlandi

Einungis eitt staðfest smit er á Austurlandi, landamærasmit sem kynnt var af hálfu aðgerðastjórnar í gær. Ekkert innanlandssmit er í fjórðungnum sem er jákvætt.

Þetta kemur fran í tilkynningu frá aðgerðastjórn lögreglunnar á Austurlandi. Þar segir einnig að sterkasta vörnin gegn smiti er að hver og einn haldi sínum persónulegu sóttvörnum í lagi, s.s. með þvi að virða fjarlægðarmörk, passa upp á handþvott og sprittnotkun og halda sig heima hafi maður einkenni og leita þá álits heilsugæslunnar.

"Höldum áfram að gera þetta saman", segir í tilkynningunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar