Aðalheiður Ósk ráðin framkvæmdastjóri Vök Baths
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vök Baths. Hún mun hefja störf í byrjun næsta árs.Aðalheiður er viðskiptafræðingur með M.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands í nýsköpun og viðskiptaþróun og B.Sc. gráðu frá Háskólanum á Akureyri.
Áður starfaði Aðalheiður sem deildarstjóri ráðgjafar og þjónustu hjá Advania, vörustjóri á sölu- og markaðssviði hjá Reykjavík Excursions – Kynnisferðum og verkefnastjóri hjá Air Atlanta Icelandic. Þá hefur hún setið í stjórn Stjórnvísi frá 2017 og gengt þar formennsku frá 2019.
Í tilkynningu segir að stjórn Vök Baths vænti mikils af samstarfinu við Aðalheiði. Hún var valin úr stórum hópi umsækjenda en alls sóttu 100 manns um starfið þegar það var auglýst í haust.
Haft er eftir Birni Gíslasyni, stjórnarformanni, að stjórnin sé ánægð með ráðninguna því Aðalheiður búi yfir mikilli reynslu í rekstri, markaðsmálum og þjónustu við viðskiptavini. Auk þess hafi hún mikinn áhuga og þekkingu á ferðaþjónustu og þá sérstaklega upplifunarhönnun fyrir ferðamenn.
„Það er spennandi tækifæri en jafnframt krefjandi að taka við sem framkvæmdastjóri hjá Vök Baths. Mér finnst mjög gaman að takast á við nýjar áskoranir og leggja mitt af mörkum. Ég hlakka til að flytja í Egilsstaði og taka virkan þátt í samfélaginu og auka verðmætasköpun á svæðinu,“ segir Aðalheiður í tilkynningunni.