Aðalheiður Ósk ráðin framkvæmdastjóri Vök Baths

Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vök Baths. Hún mun hefja störf í byrjun næsta árs.

Aðalheiður er viðskiptafræðingur með M.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands í nýsköpun og viðskiptaþróun og B.Sc. gráðu frá Háskólanum á Akureyri.

Áður starfaði Aðalheiður sem deildarstjóri ráðgjafar og þjónustu hjá Advania, vörustjóri á sölu- og markaðssviði hjá Reykjavík Excursions – Kynnisferðum og verkefnastjóri hjá Air Atlanta Icelandic. Þá hefur hún setið í stjórn Stjórnvísi frá 2017 og gengt þar formennsku frá 2019.

Í tilkynningu segir að stjórn Vök Baths vænti mikils af samstarfinu við Aðalheiði. Hún var valin úr stórum hópi umsækjenda en alls sóttu 100 manns um starfið þegar það var auglýst í haust.

Haft er eftir Birni Gíslasyni, stjórnarformanni, að stjórnin sé ánægð með ráðninguna því Aðalheiður búi yfir mikilli reynslu í rekstri, markaðsmálum og þjónustu við viðskiptavini. Auk þess hafi hún mikinn áhuga og þekkingu á ferðaþjónustu og þá sérstaklega upplifunarhönnun fyrir ferðamenn.

„Það er spennandi tækifæri en jafnframt krefjandi að taka við sem framkvæmdastjóri hjá Vök Baths. Mér finnst mjög gaman að takast á við nýjar áskoranir og leggja mitt af mörkum. Ég hlakka til að flytja í Egilsstaði og taka virkan þátt í samfélaginu og auka verðmætasköpun á svæðinu,“ segir Aðalheiður í tilkynningunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.