Einn enn á sjúkrahúsi eftir árekstur

fjordungssjukrahus neskaupstadEinn þeirra sem slasaðist í hörðum árekstri á Eskifirði í gærmorgun er enn á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Aðrir sem þangað komu fengu að fara heim í gær.

Að sögn vaktlæknis er líðan viðkomandi þokkaleg eftir aðstæðum en hann er ekki í lífshættu.

Fjórir voru fluttir á sjúkrahúsið eftir áreksturinn. Einn fór aðeins í myndatöku og tveir voru lagðir inn í stuttan tíma en útskrifaðir seinni partinn í gær.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar