Enginn sótti um stöðu héraðsdýralæknis

hundar des12Engin umsókn barst um stöðu héraðsdýralæknis á Austurlandi áður en umsóknarfrestur rann út fyrir tíu dögum. Staðan hefur verið laus síðan í vor.

Þetta er í annað skiptið á árinu sem reynt er að auglýsa stöðuna. Vandræðin hófust hins vegar fyrr þegar ekki tókst að fá afleysingalæknir þegar þáverandi héraðsdýralæknir fór í fæðingarorlof fyrir um ári.

Þá hefur gengið misjafnlega að gera þjónustusamning við dýralækni á svæðinu um að sinna vaktþjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar