Heitavatnslaust á Egilsstöðum í dag

egilsstadir 03072013 0001 webLokað verður fyrir heita vatnið á veitusvæði Hitaveitu Egilsstaða og Fella austan Lagarfljóts eftir hádegi í dag og fram á kvöld vegna tengivinnu við stofnlögn.

Í tilkynningu frá hitaveitunni eru vatnsnotendur hvattur til að gæta þess að neysluvatnskranar séu örugglega lokaðir og slökkt á dælukerfi hitaveitunnar.

Opna þurfi gætilega eftir að vatni hefur verið hleypt á lögnina að ný, búast megi við þrýstisveiflum og lofti í lögnum fram á kvöld.

Þá verður sundlaugin á Egilsstöðum lokuð á meðan framkvæmdunum stendur.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar