Síðasti dagur atkvæðagreiðslu um verkföll í dag

aflLokadagur atkvæðagreiðslu um verkföll Starfsgreinasambandsins er í dag en meðal þeirra sem greiða atkvæði eru félagar í AFLi.

Greidd er atkvæði um allsherjarverkföll frá hádegi 30. apríl og síðan verkföll sem ná yfir dagana 6., 7., 19. og 20. maí. Ótímabundin vinnustöðvun hefst svo á miðnætti aðfaranótt 26. maí hafi samningar ekki tekist.

Verkföllin ná til félagsmanna í verkamannadeild AFLs sem starfa eftir almennum samningi við Samtök atvinnulífsins og þeirra sem starfa eftir samningum um veitinga- og gististaði eða hliðstæðri starfsemi.

Atkvæðagreiðslan er rafræn og fer fram á vef Starfsgreinasambandsins. Meðal baráttumála er að koma lægstu töxtum upp í 300 þúsund krónur innan þiggja ára og laun í útflutningsgreinum verði hækkuð sérstaklega.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar