Viðgerð lokið hjá Mílu
Umræðan • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • 07. júlí 2009
Viðgerð er lokið vegna bilunar sem kom upp í stofnkerfi Mílu á
Austurlandi í nótt sem leiddi til truflunar á síma- og netsambandi.
Bilunin kom upp eftir að rafmagn var tekið af vegna viðhaldsvinnu í
veitukerfi RARIK. Talsmaður Mílu segir að gerð verði nánari úttekt á
ástæðu atviksins.