Svavar Knútur, Árstíðir og Helgi Vals á ferð um landið

Hljómsveitin Árstíðir og trúbadorarnir Svavar Knútur og Helgi Valur munu í sumar gera víðreist um fósturjörðina og koma við í helstu bæjum og sveitum hringinn í kringum landið. Gengur tónleikaferðalagið undir nafninu ,,Hver á sér fegra föðurland?" en listamönnunum þykir einmitt mjög vænt um landið og vilja hvetja landsmenn til að skipuleggja ferðalög sín innanlands í sumar. Spilað verður miðvikudaginn 8. júlí í Egilsstaðakirkju kl. 20 og á rokkhátíðinni Eistnaflugi í Neskaupstað daginn eftir, 9. júlí.

rstir_og_svavar_kntur.jpg 

 

Árstíðir hafa gert garðinn frægan undanfarin misseri og er skemmst að minnast þess að lag þeirra, Sunday Morning var valið vinsælasta lag Rásar 2 tvær vikur í röð á dögunum. Sveitina skipa þeir Daníel Auðunsson, Ragnar Ólafsson og Gunnar Már Jakobsson gítarleikarar, Jón Elísson píanóleikari og Hallgrímur Jónas Jensson sellóleikari. Árstíðir þekkjast ekki síst á ómfögrum röddunum í anda gullaldarþjóðlagarokks 8. áratugarins. Þeirra fyrsta plata kom út nú í júní og hefur hlotið góðar viðtökur. Svavar Knútur söngvaskáld hefur getið sér gott orð sem forsprakki hljómsveitarinnar Hrauns, sem hefur sent frá sér tvær plötur undanfarin ár. Sveitin er ekki síst þekkt fyrir lögin Ástarsaga úr Fjöllunum, Komdu og Clementine en einnig hefur Svavar undanfarin ár gert víðreist sem trúbador og m.a. farið í tónleikaferðalög til Ástralíu, Þýskalands og víðar. Svavar Knútur gaf í vor út plötuna Kvöldvöku sem hefur hlotið frábæra dóma í fjölmiðlum en hún er einungis seld á tónleikum. Helgi Valur er þekktur fyrir líflega framkomu sína og fjölbreytilegan stíl, en þessi óviðjafnanlegi spaugfugl hefur farið víða um land undanfarin ár. Helgi Valur gaf fyrir nokkrum árum út plötuna Demise of faith og vinnur nú að nýrri plötu sem heitir Electric Ladyboyland. Hann var valinn Trúbador Rásar 2 árið 2004 og hefur komið víða við síðan.  Stefnt er að því að halda í völdum byggðarlögum svonefndar blautföðurlandskeppnir eftir tónleika, þar sem karlar keppa um besta útlitið í blautum ullarsokkabuxum. Þessi keppni er í anda jafnréttishugsjónar og mun dómnefnd verða skipuð listamönnum og völdum dómurum úr röðum hins fegurra kyns.  Tónleikaferðalagið er dyggilega stutt af tónlistarsjóðnum Kraumi og Rás 2 og er hluti af Innrásinni, stuðningi Kraums við tónleikahald innanlands og árlegri tónleikaferð Rásar 2 um landið. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni. Hugmyndin á bakvið átakið á sér meðal annars rætur í því að stundum virðist auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að spila erlendis, frekar en hérlendis.  Stuðningur miðast oftar en ekki við útrásarverkefni.Með Innrásinni er ætlunin að styðja listamennina beint og auðvelda þeim tónleikhald innanlands með fjárhagslegum styrk, ferða- og græjustuðning. Jafnframt er stefnt á að búa til gagnagrunn yfir tengiliði sem nýst geta listamönnum við skipulagningu tónleika úti á landi. Dagskrá Tónleikaferðalagsins er svohljóðandi 25. júní fimmtudagurHveragerðiskirkja, Hveragerði Tónleikar hefjast kl. 20 26. júní föstudagur800 Bar Selfossi kl. 20Tónleikar hefjast kl. 21 27. júní laugardagurStykkishólmskirkja, StykkishólmiTónleikar hefjast kl. 15 Ólafsvíkurkirkja, ÓlafsvíkTónleikar hefjast kl. 21 28. júní sunnudagurFlateyjarkirkja, FlateyTónleikar hefjast kl. 20 29. júní mánudagurSjóræningjasafnið á PatreksfirðiTónleikar hefjast kl. 20 30. júní þriðjudagurTálknafjarðarkirkja, TálknafirðiTónleikar hefjast kl. 20 1. júlí MiðvikudagurHlaðan í Arnardal við ÍsafjarðardjúpTónleikar hefjast kl. 20 2. júlí fimmtudagurHólmavíkurkirkja, HólmavíkTónleikar hefjast kl. 20 3. júlí föstudagurFélagsheimilið Höfðaborg, HofsósiTónleikar hefjast kl. 204. júlí laugardagurHljómsveitirnar heimsækja Siglufjörð og njóta þjóðlagahátíðarinnar þar í bæ. 5. júlí sunnudagurFélagsheimilið, GrímseyTónleikar hefjast kl. 20 7. júlí þriðjudagurGamli baukur, HúsavíkTónleikar hefjast kl. 20 8. júlí miðvikudagurEgilsstaðakirkja, EgilsstöðumTónleikar hefjast kl. 20 9. júlí fimmtudagurHljómsveitirnar njóta rokkhátíðarinnar Eistnaflugs á Neskaupstað 10. júlí föstudagurÚlfaldi úr Mýflugu, Hlaða í Mývatnssveit 11. júlí laugardagur Græni Hatturinn, AkureyriTónleikar hefjast kl. 21 12. júlí sunnudagurCafé Rósenberg, ReykjavíkTónleikar hefjast kl. 21   

Mynd: Árstíðir og Svavar Knútur.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.