Nýr ritstjóri fréttavefsins

Gunnar Gunnarsson hefur tekið að sér ritstjórn fréttavefsins Austurglugginn.is en Austurnet hefur tekið fréttavefinn upp á sína arma. Fleiri fréttaritarar, dálkahöfundar og aðrir hjálparkokkar verða fengnir að vefnum á næstu vikum og mánuðum um leið og framtíðarstefna hans og umhverfi verða mótuð nánar. ImageGunnar er 25 ára Fljótsdælingur, nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hann er blaðamaður á Pressunni og hefur verið blaðamaður á Austurglugganum, auk þess að sinna lausamennsku fyrir Morgunblaðið og DV.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar