Austurland verði eitt sveitarfélag

Þau miklu tímamót urðu í austfirsku sveitastjórnasamstarfi í dag að aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) samþykkti að vinna að því að Austurland, þ.e. svæðið frá Vopnafjarðarhreppi til Djúpavogshrepps yrði eitt sveitarfélag. Tillagan var samþykkt samhljóða. Þetta er tímamótaverkefni sem á sér ekki hliðstæðu á Íslandi.

ssa.jpg

Stjórn SSA var falið að skipa starfshóp sem hafi það meginverkefni að fjalla um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna á starfssvæði SSA í eitt sveitarfélag. Starfshópurinn á innan árs að skila tillögum að stjórnkerfi nýs sameinaðs sveitarfélags, leita eftir samvinnu við ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnarmála um mögulega sameiningu, kanna vilja ríkisvaldsins til sameiginlegrar stefnumörkunar um opinberar framkvæmdir og verkaskiptingu slíks sveitarfélags og ríkisvaldsins og fjalla um þau áhrif sem tilkoma hins nýja sveitarfélags hefði í för með sér fyrir austfirskt samfélag, með sérstakri áherslu á þau tækifæri sem sköpuðust.

 

Sveitarstjórnarmaður sem Austurglugginn ræddi við eftir aðalfundinn sagði ljóst að miðstýring væri slík og ætti eftir að aukast, að sveitarfélög yrðu að sameinast til að hafa meiri slagkraft og sjálfræði um eigin mál.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.