Knattspyrna: Alvaro Montejo Calleja snýr aftur til Seyðisfjarðar
Spænski sóknarmaðurinn Alvaro Montejo Calleja, sem lék með Huginn á síðustu leiktíð, hefur gengið aftur til liðs við félagið og fékk leikheimild í dag. Þessi félagaskipti ættu að styrkja Seyðfirðinga enn frekar í toppbaráttu 2. deildar karla í knattspyrnu.Alþjóðlegur vináttuleikur í Fellabæ
Í gær fór fram alþjóðlegur vináttuleikur á gervigrasvellinum í Fellabæ, en þar tók þriðji flokkur Hattar á móti liði NSÍ frá Runavík í Færeyjum, sem skipað er 16-17 ára gömlum strákum. Færeysku strákarnir hafa verið í æfingabúðum á Akureyri undanfarna viku, en fara nú heim með Norrænu í dag.Gautaborgarleikar: „Frábært að fá að keppa á svona flottum velli“
Alls voru 10 keppendur frá UÍA á Gautaborgarleikunum, alþjóðlegu frjálsíþróttamóti fyrir unglinga sem haldið var fyrr í mánuðinum. Þar af voru níu keppendur frá Hetti og einn frá Leikni. Alls tóku um 4000 unglingar þátt í mótinu og í ár voru íslenskir keppendur rúmlega 100 talsins.Stefnir í metþátttöku í Urriðavatnssundi
Forsvarsmenn Urriðavatnssunds búa sig undir að taka á móti allt að 100 þátttakendum sem yrði mesti fjöldi í sögu sundsins.Tæpar tvær vikur eru í að það verði haldið í sjötta sinn.Körfubolti: Helgi Björn semur við Hött
Hattarmenn halda áfram að styrkja lið sitt fyrir átökin í Dominos-deildinni á næstu leiktíð. Nú hefur Helgi Björn Einarsson samið við Hött um að leika með félaginu og í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeild Hattar segir að menn á Héraði séu ánægður með að þessi samningur sé frágenginn.Helgi Björn kemur til Hattar frá Haukum þar sem hann lék tæpar 20 mínútur að meðaltali í leik á síðustu leiktíð. Helgi er stór og sterkur leikmaður, en á heimasíðu KKÍ kemur fram að hann sé 195 cm á hæð og rúm 100 kíló. Hann ætti því að geta hjálpað Hattarmönnum í baráttunni í teignum á komandi vetri.
Önnur tíðindi úr herbúðum Hattarmanna eru þau að fyrir nokkrum vikum framlengdu Hreinn Gunnar Birgisson, Sigmar Hákonarson, Ásmundur Hrafn, Benedikt Hjarðar og Stefán Númi Stefánsson samninga sína við félagið. Áður höfðu Eysteinn Bjarni og Mirko Stefán samið við félagið.
Mynd: Hafsteinn Jónasson formaður kkd. Hattar og Helgi Björn handsala samninginn.