Skipverjar á Húna II, sem voru í hringferð nýlega, komu við á Breiðdalsvík og verðlaunuðu þar Elís Pétur Sigurðsson fyrir framlag hans til fræðslumála í starfi við útgerðina undanfarin ár.
Í haust verður gefin út 100 ára saga Kaupfélags Héraðsbúa (KHB). Jón Kristjánsson, fyrrum alþingismaður og ráðherra, ritar sögu félagsins en hann vann um áratuga skeið hjá Kaupfélaginu áður en hann settist á þing.
Háskólalest Háskóla Íslands er nú stödd á síðasta áfangastað sínum þetta vorið, Fjarðabyggð. Þessa stundina sækja nemendur í elstu bekkjum grunnskóla í Neskaupstað, á Stöðvarfirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Eskifirði valin námskeið í Háskóla unga fólksins í grunnskólanum í Neskaupstað.
Lag samið og flutt af Austfirðingum er á meðal þeirra níu sem komin eru í úrslit í sjómannalagakeppni Rásar 2 og Hátíðar hafsins. Lokadagur kosningar hlustenda er á morgun.
Seyðisfjörður og Austfirðir eru til umfjöllunar í nýlegum ferðavísi á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Staðnum er hrósað fyrir fagra náttúru og marglituð timburhúsin þótt dálkahöfundi þyki nær ómögulegt að bera heiti staðarins fram.
Síðustu gjörningarnir í verkefninu Prjón verða fluttir í Skaftfelli á Seyðisfirði í dag og á morgun. Fimm myndlistarmenn hafa síðustu tvær vikur gert tilraunir með gjörningalistformið.
Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN) gaf Nesskóla nýverið 40 iPad4 spjaldtölvur ásamt hulstrum. Spjaldtölvutæknin verður sífellt fyrirferðameiri í kennslu þar sem æ fleiri forrit koma út á því formi.
Það var vel mætt í Sláturhúsið á Egilsstöðum á laugardagskvöldið þegar Ármann Einarsson og Brogan Davison sýndu þar dansverkið „Dansaðu fyrir mig“. Verkið hefur vakið mikla athygli enda Ármann tæplega fimmtugur tónlistarkennari sem aldrei hefur sýnt dans áður.
Dansverkið „Dansaðu fyrir mig“ verður sýnt í Sláturhúsinu á Egilsstöðum á laugardag. Verkið er sprottið upp úr draumi tæplega fimmtugs manns sem aldrei hafði stundað dans.