Skip to main content

"Vorið kemur, heimur hlýnar" - Páskasýning á Skriðuklaustri

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 05. apr 2023 12:23Uppfært 05. apr 2023 12:23

Páskasýning var opnuð á Skriðuklaustri þann 1. apríl síðastliðinn sem mun standa yfir til 1. maí. Sýningin er handverkssýning sem ber nafnið: „Vorið kemur, heimur hlýnar…“ og einkennast verkin af skærum litum og fjölbreyttu hráefni. 

Leitað var innblásturs til skáldsins Jóhannesar úr Kötlum þegar vorsýning Gunnarsstofnunar og Handverks og Hönnunar var undirbúin þetta árið. Eftir þungan vetur um allt land var ákveðið að vorið og gróandinn yrðu þema sýningarinnar.

Valin voru verk frá tíu einstaklingum víðs vegar að af landinu sem fást við handverk og list. Flest eru verkin marglit eða í skærum litum og úr fjölbreyttu hráefni. Sýnendur eru: Anna Gunnarsdóttir, Auður Bergsteinsdóttir, Bjarni Þór Kristjánsson, Embla Sigurgeirsdóttir, Erla Björk Sigmundsdóttir, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, Jedúddamía (Kristrún Helga Marinósdóttir) og Ólöf Erla Bjarnadóttir.

Sýningin mun standa yfir til 1. maí og markar hún upphaf voropnunar á Skriðuklaustri sem er nú opið alla daga kl. 11-17, bæði safnið og kaffihúsið.