Tímasetningum viðburða á Seyðisfirði breytt
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 24. mar 2024 10:14 • Uppfært 24. mar 2024 10:16
Vegna ófærðar og annarra keðjuverkandi atburða hefur tímasetningum ýmissra viðburða á Seyðisfirði í dag verið breytt.
Lokasýningu LungA-skólans var skipt í tvennt. Seinni hluti hennar er í dag og hefst í Sundlauginni klukkan 15:00
Frumsýningu stuttmyndarinnar „Raddir landsins sem geymir þig; og klettana, sem féllst þú frá“ er frestað um viku. Hún verður í Herðubreið næsta laugardag klukkan 14:00, á undan páskabingói Seyðfirðinga sem hefst þar klukkan 15:00.
Þá hefur sýningu Herðubíós í dag á KungFu Panda 4 verið aflýst. Hún verður eftir sem áður á sínum stað á páskadag.