Tilkynning frá Landsvaka vegna fréttar frá Afli

Landsvaki hf. telur ástæðu til að leiðrétta meintar alvarlegu rangfærslur sem Björn Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Landsvaka, segir koma fram í tilkynningu stjórnar AFLs Starfsgreinfélags Austurlands. Þar sagði að stjórn AFLs hyggðist stefna sjóðstjórum Landsvaka, er önnuðust upplýsingagjöf til félagsins og fóru með fjámuni þess, til greiðslu bóta vegna þeirra fjármuna er félagið tapaði við uppgjör fjárfestingarsjóðsins Peningabréf Landsbankans ISK.

landsbankaskyrsla.jpg

,,Því er haldið fram í tilkynningunni að sjóðstjórar Landsvaka hafi blekkt Afl til áframhaldandi viðskipta þegar ljóst hefði verið að eignasafn sjóðsins væri ekki í samræmi við lýsingar og sjóðurinn því stefnt í óefni.

Afl Starfsgreinafélag hefur aldrei gert samning um eignastýringu við Landsvaka.  Félagið var hins vegar með samning um eignastýringu við Landsbanka Íslands hf. Sjóðstjórar Landsvaka önnuðust því ekki á neinum tímapunkti upplýsingagjöf til Afls eða fóru með fjármuni félagsins.  Afl fjárfesti í sjóðum Landsvaka á grundvelli eignastýringarsamnings við Landsbanka Íslands hf. og komu sjóðstjórar Landsvaka á engan hátt að þeirri ákvörðunartöku.

Landsvaki vill jafnframt benda á að nýlega féll dómur í héraðsdómi Reykjavíkur þess efnis að fjárfestingarsjóðurinn Peningabréf Landsbankans ISK hefði verið rekinn í samræmi við auglýsta fjárfestingarstefnu sjóðsins og lög sem um slíka starfsemi gilda,“ segir í tilkynningu Landsvaka hf.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.