Starfsmenn Malarvinnslunnar fá laun

Ábyrgðarsjóður launa hefur hafið greiðslu launa, orlofs og annarra réttinda sem starfsmenn Malarvinnslunnar á Egilsstöðum áttu við gjaldþrot fyrirtækisins.

 

Greiðslurnar eru innheimtar af Regula lögmannsstofu fyrir hönd starfsmannanna og eru þær færðar á reikning viðkomandi félagsmanna AFLs samstundis og þær berast.

 

Alls hafa 23 starfsmenn af 75 sem AFL lýsti kröfum fyrir, fengið greitt en stefnt var að því samkvæmt upplýsingum frá Ábyrgðarsjóði að ganga frá greiðslum vegna 14 starfsmanna í viðbót í gær og að ljúka uppagjörum 4. maí.

 

Eva Dís Pálmadóttir, hrl. er lögmaður starfsmanna Malarvinnslunnar sem eru félagsmenn AFLs, og hefur annast innheimtuna.

 

AFL lýsti 75 kröfum og hafa 73 þeirra verið samþykktar en ennþá er ágreiningur um kröfur vegna tveggja félagsmanna.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.