Sauðfjárbændur mótmæla skipulagsbreytingum á landbúnaðarráðuneyti

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda mótmælir fyrirhuguðum breytingum á skipulagi Stjórnarráðsins sem fela í sér að leggja niður landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið. Stjórnin sendi frá sér ályktun þessa efnis 15. desember sl.

kind.jpg

,,Stjórnin telur afar óskynsamlegt að ætla sér að fara fram með þetta mál nú af tveimur meginástæðum

- Í fyrsta lagi liggur fyrir að landbúnaður og sjávarútvegur munu á næstu árum gegna mikilvægara hlutverki en nokkru sinni fyrr við að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar og afla gjaldeyristekna til að standa undir þeim skuldbindingum sem þjóðin hefur tekist á hendur.  Það er því frekar þörf á því að leggja meiri áherslu á þennan málaflokk en hitt.  Það boðar ekki gott að í drögum að nýrri byggðaáætlun sem iðnaðarráðuneytið hefur sent frá sér er ekkert fjallað um landbúnað og sáralítið um sjávarútveg.


- Í annan stað þá er það þekkt staðreynd að sameining og endurskipulagning ríkisstofnana tekur verulegan tíma og orku frá öðrum verkefnum.   Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytin voru sameinuð í eitt árið 2007 en það var fyrst á þessu ári sem að hið sameinaða ráðuneyti flutti undir eitt þak.  Að byrja nýja sameiningu nú væri fráleitt, ekki síst á sama tíma og stjórnvöld hafa sótt um aðild að Evrópusambandinu þar sem sjávarútvegur og landbúnaður verða umfangsmiklir og erfiðir málaflokkar við að fást. Að ætla sér að vera að endurskipuleggja ráðuneytið á sama tíma og það þarf að geta notað alla sína orku í að verja hagsmuni Íslands mun aðeins valda málaflokkum þess tjóni.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.