Árnar skiluðu vænum fiskum og mörgum

Þröstur Elliðason hjá Veiðiþjónustunni Strengjum segir nú lokatölur í veiði komnar í hús og ekki annað hægt en að vera ánægður með veiðisumarið. Til dæmis veiddust 319 laxar úr Jöklu, sem er mikil aukning frá fyrra ári.

lax_r_jklu.jpg

Á vef Strengja er yfirlit yfir aflann úr helstu ánum:

 

Hrútafjarðará endaði í glæsilegu nýju meti eða 642 löxum og það þrátt fyrir að köflum væri lítið vatn til vandræða en það sýnir hvað mikið af laxi var í ánni. Fyrra met var árið 2004 en þá veiddust 631 lax svo ekki munar þar miklu á milli reyndar. Megnið smálax en þó reytingur af stórlaxi með, þar af tveir stærstu sem náðu 20 pundum, annar 21 pund og 102 cm hængur úr Bálk 31. ágúst og hinn 20 punda úr Dumbafljóti  28. ágúst. Báðum sleppt eftir mælingar og hafa eflaust lagt sinn skerf í að auka kyn sitt á þessum haustdögum. Bleikjuveiðin var döpur, reyndar var oft svo mikið af laxi í Dumbafljótinu að bleikjan hefur kannski ekki alltaf komist að flugunni þar!

  

Breiðdalsá náði 782 löxum á móti 910 í fyrra og var veiðin frekar endasleppt í lokin, lítið vatn og bjart, en oft hefur hún verið mjög góð síðustu vikurnar. En samt gott sumar og í meðalveiði miðað við sl fimm ár. Og frábær stórlaxaveiði eins og undanfarin ár

Jöklusvæðið gaf nú 319 laxa en laxveiðin var 184 laxar sumarið 2008, mikið stökk enda fiskræktin að komast á flug þar og ekki síður að silungsveiðin var í góðu lagi, sérstaklega í Fögruhlíðarósinn snemmsumars og einnig stórbleikjur sem ganga í Kaldá er líður á sumarið. Um 350 silungar eru bókaðir og þar af er eitthvað af urriða og sjóbirtingi.Mikið var um smálaxahænga og lofar það góðu með göngur tveggja ára hrygna úr sjó næsta sumar á svæðið.

Laxá í Nesjum með sínar tvær stangir gaf 111 laxa, minna en 2008 en þó er það nálægt meðalveiði árinnar.  Nokkuð var um væna laxa en engin náði þó 20 pundum þar þetta árið. Einnig veiddust 36 silungar, aðallega sjóbirtingar.

  Minnivallalækur gaf 375 fiska og er fiskurinn almennt þar stækkandi, enda er öllum fiski sleppt í ánni og hann nær háum aldri ísaldarurriðinn þarna. Veiðin dreifðist betur yfir veiðitímabilið en oft áður og t.d. gáfu holl í september einnig góða veiði. Stærsti fiskur bókaður var áætlaður 13 pund úr Stöðvarhyl í júní.

Jöklusvæðið gaf nú 319 laxa en laxveiðin var 184 laxar sumarið 2008, mikið stökk enda fiskræktin að komast á flug þar og ekki síður að silungsveiðin var í góðu lagi, sérstaklega í Fögruhlíðarósinn snemmsumars og einnig stórbleikjur sem ganga í Kaldá er líður á sumarið. Um 350 silungar eru bókaðir og þar af er eitthvað af urriða og sjóbirtingi.Mikið var um smálaxahænga og lofar það góðu með göngur tveggja ára hrygna úr sjó næsta sumar á svæðið.

Laxá í Nesjum með sínar tvær stangir gaf 111 laxa, minna en 2008 en þó er það nálægt meðalveiði árinnar.  Nokkuð var um væna laxa en engin náði þó 20 pundum þar þetta árið. Einnig veiddust 36 silungar, aðallega sjóbirtingar.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.