Námskeiðið Brautargengi á Austurlandi

Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands gengst nú í fjórtánda sinn fyrir svokölluðum Brautargengisnámskeiðum á landsbyggðinni. Skráningarfrestur á námskeiðið rennur út í dag. Í vor er áætlað að halda námskeiðið á tveimur stöðum á landinu, Austurlandi og Akureyri. Alls hafa um átta hundrað konur víðs vegar um land lokið Brautargengisnámskeiði frá upphafi.

 


Brautargengi er 70 kennslustunda námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja. Meðal markmiða námskeiðsins eru að nemendur öðlist hagnýta þekkingu á þáttum er lúta að stofnun og rekstri fyrirtækja, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun. Einnig öðlast nemendur tengsl við atvinnulífið í gegnum fyrirlesara, leiðbeinendur og aðra þátttakendur.

Fyrir hverja er Brautargengi?
Brautargengi er sérsniðið námskeið fyrir athafnakonur sem hafa viðskiptahugmynd sem þær vilja hrinda í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki. Eina inntökuskilyrðið er að þátttakendur hafi viðskiptahugmynd til að vinna með á meðan námskeiðinu stendur.

Kennt er einu sinni í viku í 14 vikna lotu, 4,5 klst. í senn og lýkur með útskrift.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:
-    Skrifi viðskiptaáætlun
-    Kynnist grundvallaratriðum varðandi stofnun fyrirtækja
-    Öðlist hagnýta þekkingu á þeim þáttum sem koma að fyrirtækjarekstri, s.s. stefnumótun, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun

Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, verkefnavinnu og persónulegri handleiðslu og hentar jafnt konum sem eru að hefja rekstur og konum sem reka nú þegar fyrirtæki.

Kennsla hefst um miðjan febrúar 2010 og fer fram annað hvort í Fjarðabyggð (Reyðarfirði) eða á Fljótsdalshéraði (Egilsstöðum) en staðsetning tekur mið af því hvaðan meirihluti þátttakenda kemur.
 
Nánari upplýsingar og skráning má nálgast á vefsíðu Impru, www.impra.is , eða hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra í síma 522 9434, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.