Ánægja hjá HB Granda með kvótann

Samkvæmt ákvörðun sjávarútvegsráðherra um 40 þúsund tonna byrjunarkvóta á veiðum á íslenskri sumargotssíld nú á vertíðinni, koma alls um 4.500 tonn í hlut skipa HB Granda. Stefnt er að því að hvert hinna þriggja uppsjávarveiðiskipa félagsins fari eina veiðiferð á miðin í Breiðafirði og er áætlað að Faxi RE haldi til síldveiða í kvöld.

hbgrandi.jpg

Á vefsíðu HB Granda er haft eftir Vilhjálmi Vilhjálmssyni, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda að það sé kærkomið að fá verkefni fyrir uppsjávarveiðiskipin og –vinnsluna á þessum árstíma og tekjurnar komi sér vel fyrir félagið og þá starfsmenn sem taka þátt í þessu verkefni.

  

Að sögn Vilhjálms veiddu skip félagsins um 18.200 tonn af íslenskri sumargotssíld á síðustu vertíð eða fjórfalt meira magn en sem nemur úthlutuðu aflamarki nú. Byrjunarkvótinn nú sé hins vegar ákaflega mikilvægur og menn voni það besta og að hægt verði að auka við kvótann síðar í vetur. Vilhjálmur segist ákaflega ánægður með það hvernig staðið var að rannsóknum á síldarstofninum í haust en þær rannsóknir hafi leitt til þeirrar niðurstöðu sem nú hafi fengist.

  

,,Það má fullyrða að farsælt samstarf Sjávarútvegsráðuneytisins, Hafrannsóknarstofnunar og uppsjávarútgerðanna hafi leitt til þess að þó þetta aflamark var gefið út. 15 þúsund tonna rannsóknarkvótinn, sem ráðuneytið gaf út, gerði útgerðarfyrirtækjunum og Hafrannsóknarstofnun kleift að fara í útbreiðslukönnun og síðan í stofnmælingu sem staðfesti að stofninn var mun stærri en síðustu tvær mælingar bentu til,“ segir Vilhjálmur en hann dregur ekki dul á að full ástæða sé til þess að hafa miklar áhyggjur af sýkingunni í síldinni og rannsóknum á henni, útbreiðslu hennar og afleiðingum sé hvergi nærri lokið.

  

,,Samkvæmt sýnum, sem send hafa verið Hafrannsóknarstofnunar, er sýkingarhlutfallið síst minna en í fyrra. Vísindamenn telja að öll sýkt síld drepist en þeir sem starfa við vinnsluna eru sumir þeirrar skoðunar að gróin sár og blettir, sem þeir hafa orðið varir við í síldinni, bendi til þess að sú síld hafi lifað sýkinguna af,“ segir Vilhjálmur en hann upplýsir þegar síldveiðum ljúki verði hugað að veiðum á gulldeplu. Þeim afla verði landað á Akranesi en þaðan sé stutt á miðin.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.