Skip to main content

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hafið

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 13. mar 2009 09:33Uppfært 08. jan 2016 19:19

XXIII. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga var sett á Hilton Nordica Hotel í Reykjavík í morgun. Halldór Halldórsson formaður sambandsins setti þingi. Í ræðu sinni fjallaði hann einkum um fjármál sveitarfélaga og viðbrögð þeirra við efnahagsvandanum. Hann ræddi þær launalækkanir sem sveitarfélögin hafa orðið að grípa til og hvatti til að fundnar verði leiðir til þess að lækka kostnað við rekstur grunnskóla í samráði við kennara.

11846857251877973637rett_blatt_transparent.gif

Halldór sagði að sveitarfélög og ríki yrðu að grípa til ráðstafana sem örvi atvinnulífið og að þær ráðstafanir felist ekki í aukinni skattheimtu af hálfu hins opinbera. Niðurskurður og hagræðing er það sem gildi við þær aðstæður sem menn búi við nú um stundir.

Formaðurinn greindi og frá viljayfirlýsingu sambandsins og ríkisstjórnar Íslands um tilfærslu á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga, sem áætlað er að verði í ársbyrjun 2011.

 Hann óskaði jafnframt eftir því að þingfulltrúar ræði hvort sambandið eigi að breyta þeim áherslum sínum að sameining sveitarfélaga eigi að fara fram með frjálsum, ólögbundnum hætti eða hvort hækka eigi lágmarksíbúatölu sveitarfélaga í sveitarstjórnarlögum.