Landamærin máð út

Listahátíðin List án landamæra verður haldin í sjötta sinn sunnudaginn 3. maí. Undanfarin ár hafa fatlaðir og ófatlaðir unnið saman að ýmsum listtengdum verkefnum með frábærri útkomu. Hátíðin var fyrst haldin á Evrópuári fatlaðra 2003-2004 og var ákveðið upp frá því að gera þetta að árlegum viðburði og hafa sífellt fleiri þátttakendur og áhorfendur bæst við á ári hverju. List án Landamæra verður meðal annars í menningarsetrinu Sláturhúsinu á Egilsstöðum milli kl. 14 og 18. Í boði er leiklist, myndlist, tónlist, danslist, handverk, grænlenskur trommudans, ,,geðveikt kaffihús“ í umsjón Kvenfélagsins Bláklukku og margt fleira. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

list_n_landamra.jpg

 

 

Dagskrá Listar án landmæra á Fljótsdalshéraði:

  Ævintýrið Leiklist kl. 14:00

Leiksmiðja fyrir fatlaða þar sem grunnþemað er ævintýri. Hver þátttakandi velur sér persónu úr ævintýraveröldinni, hvort sem þar er um að ræða kóng, drottningu, prins,

prinsessu, tröll, tré eða blóm. Þannig getur hver og einn gengið inn í sitt hlutverk eftir líkamlegri og andlegri færni og getu. Spunnið verður út frá þekktum ævintýrum og

þemum þeim tengdum þannig að úr verði nýtt leikverk, samið og leikið af hópnum. Leiðbeinandi: Sigurður Ingólfsson.

  Listasmiðja – Leik/Mynd

Listasmiðjan Leik/Mynd er unnin í samstarfi við listasmiðjuna Ævintýrið Leiklist. Þátttakendur fá að spreyta sig á því að vinna að leikmynd fyrir leiksýninguna. Þeir vinna aðallega með ljós og skugga með eigin líkama og með því að klippa út fígúrur í karton og varpa þeim

á hvítt tjald á leiksýningunni Ævintýrið. Einnig mun hver þátttakandi gera eina portrett mynd - sjálfsmynd. Þær myndir verða einnig til sýnis á uppskeruhátíðinni sunnudaginn 3. maí. Leiðbeinandi: Ólöf Björk Bragadóttir.

 Danssýning barna í Hallormsstaðaskóla kl. 15:00

Sýning barna 6-9 ára á ýmsum dönsum m.a. sýning á frumsömdum dansi eftir Þráinn kennara þeirra, við tónlist frá Kenýa. Leiðbeinandi: Þráinn Skarphéðinsson, þjóðdansafélaginu Fiðrildunum.

 Huggulega hljómsveitin kl. 15:30

Tónlistarflutningur mjög huggulegrar hljómsveitar í ,,geðveika kaffihúsinu.” Tónlistarmennirnir Óðinn Gunnar, Matti, Kati, James og Xabi leika af fingrum fram. Anna Thastum, trommudansari frá Grænlandi flytur seiðmagnaðan grænlenskan gjörning kl. 16:00 Ekki missa af þessum einstaka viðburði frá góðum nágranna okkar frá Grænlandi.

 ,,Geðveikt kaffihús" opið kl. 14-18

Boðið verður upp á ljúffengar veitingar, ljóðaupplestur og fleira óvænt. Sala á fallegu handverki frá Stólpa. Prjónar, læknasloppar og spennitreyjur velkomnar!

 Sjálfsmyndir

Ýmsir íbúar sveitarfélagsins, skjólstæðingar Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, nemendur grunnskólanna á Fljótsdalshéraði og Menntaskólans á Egilsstöðum búa til sjálfsmyndir úr ólíkum efnivið og sýna afrakstur í Sláturhúsinu. Ólíkir stílar og ólík nálgun býður upp á mjög fjölbreytta og skemmtilega samsýningu.

 Leirlist

Leirlistarsýning nemenda Anne Kampp leirlistakonu. Fallegir gripir til sýnis og sölu. Ólíkir stílar og ólík nálgun býður upp á mjög fjölbreytta og skemmtilega samsýningu.

 Frjáls eins og fuglinn

Stutt námskeið var haldið 4. apríl þar sem um 60 þátttakendur bjuggu til fugla úr þæfðri ull, vír, silki, pappír o.fl. Í framhaldi af námskeiðinu birtast fuglarnir á óvæntum stöðum á Egilsstöðum fram að 3. maí sem boðberar friðar og sköpunarfrelsis persónunnar. Leiðbeinendur: Erla Vilhjálmsdóttir og Halla

Ormarsdóttir.

 

Samstarfsaðilar um hátíðina eru Fjölmennt, Fullorðinsfræðsla fatlaðra, Átak, Félag fólks með þroskahömlun, Hitt húsið, Öryrkjabandalag Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp. Fjölbreytt dagskrá er á Akureyri, Egilstöðum, Vestmannaeyjum, Selfossi og á fleiri stöðum á landsbyggðinni.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.