Jöklar og saga, stjörnur og rómantík

Haustþing Þórbergsseturs verður að þessu sinni haldið laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. október. Á þinginu verður blandað saman fræðslu, skemmtun og útiveru og komið víða við. torbergur-tordarsson-espera.jpg

Þingið hefst kl 13:00 á fyrirlestri Helga Björnssonar jöklafræðings ,,Frá Breiðumörk til jökulsands, mótun lands í þúsund ár” og síðan verður farið í ferðalag um Breiðamerkursand og inn í Þröng, þar sem glögglega sést hversu hratt Breiðamerkurjökull hefur hopað á síðustu árum og áratugum.  Dætur Einars ríka í Vestmannaeyjum verða síðan með skemmtilega dagskrá í máli og myndum tengda samskiptum Þórbergs og Einars ríka föður þeirra. Og til að ætla vísindunum veglegan sess á þessu málþingi þá mun Snævarr Guðmundsson  fjalla um stjörnur og óravíddir himingeimsins, og hvort sem sjást einhverjar stjörnur á himninum eða ekki á að æfa sig í myrkragöngu og fara upp á Helghól undir miðnætti. Á sunnudeginum ætlar Halldóra Gunnarsdóttir mannfræðingur að vera með erindi um Þórberg og ástina. Einnig verður ungur íslenskunemi með erindi tengt BA ritgerð sinni sem fjallar um Þórberg og rómantíkina. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir er að skrá bréfasafn Þórbergs í Landsbókasafninu og segir skemmtilegar fréttir tengdar því, en síðan verða heimamenn með erindi eftir hádegi. Líkur eru á að meinlaust grín blandast dagskráinni eins og gjarnan þegar fjallað er um Þórberg og verk hans

 

Allir eru velkomnir að sitja málþingið allt eða hluta þess.

 

Dagskrá

 

 

Laugardagur 17. október

 

 

13:00 Setning

 

13:10 ,,Frá Breiðumörk til jökulsands, mótun lands í þúsund ár” Helgi Björnsson jöklafræðingur

 

14:00 Ferð að Breiðamerkurjökli ( Hægt að aka á eigin bíl langleiðina)

 

16:30 Dagskrá tengd samskiptum Þórbergs Þórðarsonar og Einars ríka ,,Þú hefðir ekki átt að bæta við

 

          þig nýjum bátum á meðan þú stóðst í ævisögurituninni.“  dætur Einars ríka,  Auður Einarsdóttir

 

          íslenskufræðingur og Sólveig Einarsdóttir framhaldsskólakennari

 

19:30 Kvöldverður að hætti Þórbergsseturs, Halaafurðir á borðum

 

21:00 Stjörnur; Snævarr Guðmundsson

 

22:00 Stjörnuskoðun á Helghól, myrkraganga

 

 

 

Sunnudagur 18. október

 

 

10:00 „Að elska er að yrkja fegursta ljóð í víðri veröld.“ Þórbergur og ástin. Halldóra Gunnarsdóttir

          mann- og kynjafræðingur

10.40  Þórbergur og rómantíkin;  Arngrímur Vidalín Stefánsson BA íslenskunemi Háskóla Íslands

11:20 ,,Þjer eruð aumingi - að skrifa mjer aldrei." Úr bréfum til Þórbergs.

          Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir bókmenntafræðingur

12:00 Hádegisverður, kjötsúpa og rúgbrauð með kæfu

13:00  ,,Að afbyggja karlmann:” Um sjálfsmyndir Þórbergs Þórðarsonar.

 

          Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur

13:30 Söguslóð á Suðausturlandi, kynning frá Þórbergssetri

14:00 Þingslit

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.