Höttur fallinn
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 07. mar 2009 18:18 • Uppfært 08. jan 2016 19:19
Höttur féll í dag úr 1. deild karla í körfuknattleik þegar liðið tapaði 94-80 fyrir Ármanni í íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Ármenningar voru miklu betri í fyrsta leikhluta og náðu þar með 17
stiga forskoti, 22-7. Gestirnir spiluðu illa, voru hræddir, nýttu færi
sín illa og sjálfstraustið virtist ekkert. Þeir minnkuðu muninn samt í
26-13 fyrir lok fjórðungins. Þeir bitu betur frá sér í næsta leikhluta,
leiddir áfram af Bayo Arigbon sem braust ítrekað í gegnum vörn Ármanns
og ýmist skoraði eða vann víti. Í hálfleik var staðan 46-36.Ármenningar héldu samt Hattarmönnum í þægilegri fjarlægð, um tíu stigum og bættu síðan við. Sveinbjörn Skúlason tognaði aftan í læri og varð að fara út af og Ragnar Óskarsson fór í burtu í fússi eftir dapran þriðjan leikhluta. Staðan í lok hans var 72-56. Undir lok leikhlutans fóru Ármenningar að keyra skyndisóknir af miklum móð, þar sem Hermann Maggýarson negldi boltanum fram, að hætti Ólafs Stefánssonar eða leikstjórnanda í NFL, gjarnan á Steinar Kaldal sem var fremstur og kláraði einföld færin.