Helgi á göngu: Útivistar og menningarhelgi á Borgarfirði eystri

Nú stendur yfir á Borgarfirði eystri Útivistar og menningarhelgin ,,Helgi á göngu", sem er samstarfsverkefni Ungmennafélags Borgarfjarðar, Ungmennafélags Íslands og Ungmenna og íþróttasambands Austurlands.  

helgi_a_gongu_hafthor_snjolfur.jpgMenningar og útivistarverkefnið Helgi á göngu, hófst í gær með sólstöðugöngu á Svartfell. Helgi á göngu, heldur síðan áfram í dag með göngu frá Stapavík um Gönguskörð í Njarðvík.   Lagt verður af stað frá Unaósi kl 14:00 og gengið út með Selfljóti að Stapavík en þar er  gömul uppskipunarhöfn.
Þeir sem vilja geta gengið sömu leið til baka en leiðsögn verður um gömlu þjóðleiðina til Njarðvíkur og Borgarfjarðar um Gönguskörð.

Síðan heldur Menningar og útivistarhelgin áfram með gönguferðum alla daga fram á helgi, föstudag og laugardag en Helgi á göngu, lýkur með léttri skoðunarferð um Bakkagerðisþorp á sunnudaginn.

Nánari upplýsingar um Helgi á göngu, má finna á heimasíðu Ferðamálahópsins á Borgarfirði eystri.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.