Gott í gogginn: Teriaki- urriði og fleira gott

Austurglugginn er í sumarskapi og gaukar að lesendum blaðs og vefs ómótstæðilegum sumaruppskriftum til að gleðja munn og maga um helgina. Matgæðingur Austurgluggavefsins að þessu sinni, Ævar Dungal, lætur okkur í té sannkallað sólargóðgæti, enda von á brakandi blíðu um helgina.

urrii.jpg

Forréttur að hætti Ævars:

 

Ruccolasalat (klettasalat)

tómatar

paprika

soðin egg

bréf af kurluðu beikoni

humar

  

Grænmetið lagt í hreiður. Soðin egg lögð hringinn. 1 bréf af kurluðu beikoni steikt og því stráð yfir. Humar bakaður í þremur matskeiðum af Hony Mustard Barbeque olíu og settur á hreiðrið. Í sósu með þessu fer 1 peli rjómi á móti 2 msk Hony Mustard Barbeque olíu. Gott er að hafa hvítlauksbrauð með forréttinum.

  Aðalréttur að hætti veiðimannsins:

Teriaki-marineraður urriði með wasabi-kartöflumús og sítrusruccola-salati

 

Ca 6 punda urriði eða 4 stk. 250 g stykki pr. mann

1 flaska teriaki-sósa

1 sítróna

 

Teriaki-sósu og safa úr sítrónu, ásamt rifnum berki af sítrónunni blandað saman. Fiskinum velt upp úr og látið marinerast í 4-6 tíma. Eldaður í eldföstu móti við 180 °C í 12-15 mínútur. Má einnig grilla. 

 

Kartöflumús

 

4 bökunarkartöflur skrældar og soðnar

100 g smjör

1 peli rjómi

1 msk wasabi

1 búnt vorlaukur

salt og pipar

 

Rjómi, smjör og wasabi soðið saman og kartöflum bætt saman við og maukað. Vorlaukur saxaður og blandað saman við rétt áður en kartöflur eru bornar fram.  Kryddað til eftir smekk með salti og pipar.

 

Ruccolasítrus-salat

 

1 poki ruccola salat

1 appelsína afhýdd og skorin í bita

1 grape ávöxtur afhýddur og skorinn í bita

Smá ólífuolía og balsamicedik  (ca 2 msk af hvoru)

3 tómatar skornir í teninga, einnig má nota konfekttómata

salt og pipar

Rifnum parmesanosti bætt saman við í lokin

Ljúfur desert á fallegu sumarkveldi

1 kg vínber
1 msk. hunang
2 bollar sykur
1 bolli vatn
börkur af ½ sítrónu
2 staup af líkjör (t.d. Dom, Grand Marnier, Contrau)
1 staup koníak
safi úr ½ sítrónu

Vínberin skorin í tvennt og steinhreinsuð. Sykur og vatn soðið í þunnt sýróp. Hunangi bætt í. Kælt. Sítrónuberki, víni og sítrónusafa bætt út í. Þessu hellt yfir vínberin og látið standa til næsta dags. Borið fram með ísköldum þeyttum rjóma.

 

 

Verði þér að góðu

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.