Fullveldissinnar draga framboð til baka

L – listi fullveldissinna mun ekki bjóða fram í komandi Alþingiskosningum  og hefur dregið framboð sitt til baka, að sögn vegna ólýðræðislegra aðstæðna. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi sem haldinn var í Hafnarfirði í gær. Hreyfingin mun áfram starfa sem frjáls framboðs- og sjálfstæðishreyfing.

l-listinn_enginn-bakgrunnur.gif

Í tilkynningu frá flokknum segir að L-listi fullveldissinna treysti sér ekki til að uppfylla þau skilyrði sem ólýðræðislegar aðstæður skapa nýjum framboðum á þessum stutta tíma sem liðinn er frá því ákvörðun var tekin um kosningar. Þaulseta Alþingis fram undir kosningar með allri þeirri athygli sem störf þess fá skipta hér miklu.

,,Annað sem skiptir máli er sá múr sem 5% lágmark setur nýjum framboðum og krafa um 126 frambjóðendur í sex kjördæmum. Þá skapar opinber fjárstuðningur ríkisins til eldri stjórnmálahreyfinga mikinn aðstöðumun framboða. Síðast en ekki síst vegur þungt hvernig fjölmiðlar hafa hundsað óskir okkar um jafnræði í umfjöllun.

Þegar boðað var til framboðs L-listans var því spáð að bæði Sjálfstæðisflokkur og Vinstri hreyfingin grænt framboð myndu kúvenda í afstöðu til aðildar Íslands að ESB. Niðurstöður þessara flokka urðu aftur á móti að halda í fyrri stefnur um andstöðu við aðild. Í því er fólginn mikill varnarsigur eftir stórsókn ESB sinna á nýliðnu ári. Svo virðist sem aðildarsinnum hafi um sinn mistekist að nýta sér ótta almennings í fjármálahruninu til að grafa undan fullveldi Íslands. Í bæði Sjálfstæðisflokki og VG var þó gefinn óþarflega mikill slaki gagnvart þeim þjóðhættulegu hugmyndum sem nú ríða yfir að Ísland skuli setjast á kosningavagn Brusselvaldsins.

L-listi fullveldissinna varar við allri tilslökun í þessu máli og hvetur stuðningsmenn sína til að kjósa ekki þau framboð sem hafa beinar aðildarviðræður að ESB á stefnuskrá sinni. L-listi fullveldissinna þakkar fjölmörgum stuðningsmönnum framboðsins ómælda elju og baráttu og minnir á að barátta smáþjóðar fyrir frelsi sínu og fullveldi er ævarandi.“

  

Undir þetta rita:

 

Þórhallur Heimisson

Kristbjörg Gísladóttir

Már Wolfgang Mixa

Sigurbjörn Svavarsson

Bjarni Harðarson

Guðrún Guðmundsdóttir

 

(Fréttatilkynning L-lista fullveldissinna, 3. apríl 2009)

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.