Frysting á síld hafin á Vopnafirði

Fyrsta síldin úr norsk-íslenska síldarstofninum á þessari vertíð barst til Vopnafjarðar nú í morgun er áhöfnin á Faxa RE kom þangað með rúmlega 400 tonna afla. Löndun hófst þegar í stað eftir að skipið lagðist að bryggju um tíuleytið og fór síldin til vinnslu í fiskiðjuveri HB Granda þar sem hún er flökuð og fryst.

 

Að sögn Alberts Sveinssonar skipstjóra á Faxa fékkst síldin í tveimur holum djúpt norðaustur af Langanesi.

,,Við vorum með um 200 tonna hol á sunnudagskvöldinu en síðan dreifði síldin sér og mest allur gærdagurinn fór í að leita að síld í veiðanlegu magni. Við fengum svo annað álíka stórt hol seinni partinn í gær,” segir Albert.

Magnús Róbertsson, vinnslustjóri HB Granda á Vopnafirði, var að vonum ánægður með síldaraflann sem byrjað var að vinna nú í hádeginu og þá ekki síst það að síldin skyldi henta í frystingu.

,,Síldin er reyndar frekar horuð eins og hún er jafnan á þessum árstíma. Hún hentar samt til vinnslu fyrir manneldi og það er fyrir mestu,” segir Magnús Róbertsson.

 

Þess má geta að Lundey NS er einnig á síldveiðum og fékk skipið um 200 tonna afla í gærkvöldi.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.