Fljótsdalshérað áfram í Útsvari

Sveitarfélagið Fljótsdalshérað vann Kópavog 90-85 í spurningakeppninni Útsvari í kvöld. Liðið er þar með komið í fjórðungsúrslit.

ImageSveitarfélagið Fljótsdalshérað vann Kópavog 90-85 í spurningakeppninni Útsvari í kvöld. Liðið er þar með komið í fjórðungsúrslit. Fljótsdalshérað tók strax forustuna og gekk óvenju vel í hraðaspurningum. Bilið jókst jafnt og þétt og gat Fljótsdalshérað leyft sér að taka fimm stiga spurningu í næst seinustu spurningu. Engu skipti þótt seinasta spurningin gengi Fljótsdalshéraði úr greipum. "Okkur er alveg sama því við unnum þetta," sögðu liðsmenn Fljótsdalshéraðs þegar þeir voru spurðir hví þeir hefðu ekki valið sér frekar fimmtán stiga spurningu.

Kópavogsliðið hefur unnið keppnina síðastliðin tvö ár. Flugeldum var skotið upp á Egilsstöðum skömmu eftir að keppninni lauk, væntanlega til að fagna sigrinum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.