Skip to main content

Engin spákaupmennska hjá Alcoa

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 30. jún 2009 16:22Uppfært 08. jan 2016 19:20

Alcoa Fjarðaál starfar í alþjóðlegu umhverfi, samkvæmt alþjóðlegum viðskiptasamningum og í nánu samráði við íslensk stjórnvöld, banka og raforkuframleiðendur. Milli Alcoa á Íslandi og ríkisvaldsins gildir sérstakur fjárfestingasamingur og hefur starfsemi fyrirtækisins frá upphafi verið í samræmi við hann. Engin breyting varð þar á við bankahrunið á Íslandi né heldur við gildistöku reglna Seðlabankans varðandi viðskipti með krónur. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem fyrirtækið sendi frá sér í dag.

Ennfremur kemur fram í yfirlýsingunni að Alcoa Fjarðaál hafi farið í einu og öllu eftir þeim reglum eins og bankinn getur staðfest. ,,Frá upphafi starfsemi á Íslandi hefur fyrirtækið aldrei stundað spákaupmennsku með íslensku krónuna af neinu tagi. 
Alcoa á Íslandi hefur frá upphafi haft reglulegt samráð við Seðlabanka Íslands um tilhögun gjaldeyrisviðskipta sinna. Í vor var byrjað að ræða við bankann um að færa þau í auknum mæli til landsins. Stjórnendur Alcoa á Íslandi áttu fyrir helgina fund með seðlabankastjóra og fleiri stjórnendum bankans, þar sem Alcoa bauðst til að færa öll viðskipti sín með krónur til landsins.
Alcoa er fjölþjóðlegt almenningshlutafélag og upplýsingar um rekstur þess eru háðar alþjóðlegum reglum um kauphallarviðskipti. Af þeirri ástæðu getur fyrirtækið ekki veitt opinberlega upplýsingar um gjaldeyrisviðskipti sín öðrum en þeim sem lög kveða á um."