Brýnt að nota flugeldagleraugu - skemmd augu verða trauðla bætt

Um hver áramót verða slys í tengslum við flugeldavörur.  Flest þeirra má rekja til þess að hvorki er farið eftir grundvallarreglum um notkun flugelda né leiðbeiningum sem eru á vörunum og algengast er að einstaklingar slasist á höndum, andliti og augum.

flugeldar.jpg

Undanfarin ár hafa Blindrafélagið og Slysavarnafélagið Landsbjörg unnið saman að forvörnum til að fyrirbyggja augnslys af völdum flugelda. Nú senda félögin öllum 10 til 15 ára börnum gjafabréf fyrir flugeldagleraugum í samstarfi við Íslandspóst, Prentsmiðjuna Odda og Sjóvá.  Í tilkynningu segir að með stuðningi þessara fyrirtækja hafi 26.462 börnum nú verið send gjafabréf fyrir flugeldagleraugum og vonast sé til að þau verði til þess að ekkert þeirra slasist á augum um áramótin.  Rétt er að taka fram að allir ættu að nota flugeldagleraugu, sama á hvaða aldri þeir eru, hvort viðkomandi er að skjóta upp eða eingöngu að horfa á.

Fikt með flugeldavörur er alltof algengt hjá krökkum og þá sérstaklega strákum. Þeir taka flugelda í sundur, safna púðrinu saman og búa til sínar sprengjur eða taka kökur í sundur og sprengja hvern hólk fyrir sig. Þessi leikur er stórhættulegur og foreldrar verða að vera vakandi og meðvitaðir um það sem börn þeirra eru að fást við þessa daga.

Gjafabréfum á flugeldagleraugu má framvísa á öllum flugeldamörkuðum björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar til að fá gleraugun afhent. Einnig fylgja flugeldagleraugu öllum fjölskyldupökkum sem seldir eru hjá björgunarsveitum.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.